Andleg ruslafata

Lí­f mitt var ekkert nema skáldskapur, dans eftir undarlegu lagi sem enginn heyrði nema ég, dagarnir mínir, stuttir og langir, vísur orð sem rímuðu ekki.

þriðjudagur, október 02, 2007

Mátti til.

Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar ástæður hversvegna:

Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa?" Hún kærir sig kollótta um hvað þú ert að hugsa.
Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn .

Konur yfir 40 eru virðulegar.
Þær fara sjaldan í öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Auðvitað gera þær það ef þú átt það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.


Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum, er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.


Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu.


Konur, ég biðst afsökunar.


Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt"

Hér eru nýjar upplýsingar; Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum

Hversvegna?


Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pulsu!


Andy Rooney

Það er gott að vera til. Kveikjum á kerti

2 Comments:

  • Sko, það má vel ver að þetta með konur yfir fertugu sé hárrétt - hins vegar neitar konan mín (46) að horfast í augu við staðreyndir, telur sig enn vera þrjátíuogeitthvað, og því á þetta alls ekki við hana. Ég sé fram á dýrðardaga þegar hún áttar sig..............

    By Blogger Gunnar , at 9:06 e.h.  

  • jamm það er nú það. Gott að vera í þessum góða hópi kvenna yfir fertugt. En svo ég komi mér nú að aðalerindinu, Elsku Hafdís mín, innilega til hamingju með enn eina stjörnuna í ömmu safnið. Ekki laust við að ég öfundi þig á þessum börnum sem eru hætt þessum endalausu æfingum og farin að snúa sér að framleiðslu!! Bestu kveðjur frá útivinnandi konu á sextugsaldri

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


Vorið kemur með von til mí­n.
 
Sign my Guestbook from Bravenet.com Get your Free Guestbook from Bravenet.com