Andleg ruslafata

Lí­f mitt var ekkert nema skáldskapur, dans eftir undarlegu lagi sem enginn heyrði nema ég, dagarnir mínir, stuttir og langir, vísur orð sem rímuðu ekki.

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Einmuna snilld.

Í útvarpinu í morgun þegar ég var á leið í vinnu heyrði ég setningu:
"Ekki er vitað um ferðir þeirra fugla sem valda smiti" Ég geri ráð fyrir að um sé að ræða fuglaflensuna góðu.

Svo er það nú með að láta vita af ferðum sínum; ætti ekki að áminna fuglana fyrir vanrækslu, eða í það minnsta hóa þeim saman og kenna þeim mannasiði(fuglasiði).
Ég skil nú aldeilis ekki hvað það er flókið að láta vita af ferðum sínum bara eitt kvak/tíst eða svo. Ekki er nema von að við manneskjurnar séum böggum hildar yfir þessu.

Ég heyrði ágæta tilgátu um hvort einhver er með fuglaflensu eða ekki:
Ef þú ert lasinn og færð allt í einu gífurlega löngun til að s.... á höfuð næsta manns er pottþétt að þú ert með fuglaflensuna.

Svo mörg voru þau orð.

Njótið hvers annars.

Það er gott að vera til. Kveikjum á kerti

2 Comments:

  • Ég hef raunar fundið hjá mér hvöt til að skxta á höfuð ákveðins manns í Stykkishólmi og myndi eflaust nýta mér fyrrgreinda fuglseiginleika til þess. Kemur nánar fram í pistilstúf sem ég skrifaði að morgni sprengifrídags. (skólafrí kostar það að við foreldrarnir skiptumst á að taka frí úr vinnu til að eyða tíma með dömunum, svo dagarnir fari ekki allir í MSN og viðlíka kæruleysi).

    By Blogger Gunnar , at 5:41 e.h.  

  • lol.. Lynja

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


Vorið kemur með von til mí­n.
 
Sign my Guestbook from Bravenet.com Get your Free Guestbook from Bravenet.com