Andleg ruslafata

Lí­f mitt var ekkert nema skáldskapur, dans eftir undarlegu lagi sem enginn heyrði nema ég, dagarnir mínir, stuttir og langir, vísur orð sem rímuðu ekki.

fimmtudagur, mars 02, 2006

Andleysi.

Andleysi - and leysi. Ef and þýðir að anda kafna ég fljótlega.
Að draga andann að sér. Hvaða andi skyldi þetta nú vera? Draga hann að mér??????????????????? Með hverju og hvernig?
Andinn kom yfir mig. Einn andi margir andar.
Er andi eitthvað áþreyfanlegt?
Ég var/er með öndina í hálsinum.............. svona venjulega stokkönd?

Brabrabrabra.


Njótið hvers annars.

Það er gott að vera til. Kveikjum á kerti

3 Comments:

  • Hvaða anda hafðir þú í huga þegar þú skírðir síðuna "Andleg ruslafata"? Raunar hefði ég í þínum sporum breytt nafninu í "Andans ruslafata", því mér svona finnst það réttara.
    Að vera með önd í hálsinum er slæmt. Sérstaklega nú á tímum fuglaflensu. Eru endur ekki í sérlegum áhættuhópi?
    Vona að enginn andist.

    Andaðu rólega!

    By Blogger Gunnar , at 7:39 f.h.  

  • Ég er búin að finna það út að ég þarf ekki á hláturnámskeið þú dugar Gunnar minn.
    Þetta er svo and-skoti skemmtilegt hjá þér.
    Nafnagiftin "Andleg ruslafata" kemur frá kennara sem ég hafði fyrir hartnær hálfri öld sá ágæti maður bauð nemendum að koma upp að töflu og "Hella úr þinni andlegu ruslafötu yfir okkur"
    Ég er sein að skilja, ekki fyrr en nýverið sem ég fór að velta þessu fyrir mér, með þeim afleiðingum að allt sigldi í strand.

    Anda anda anda enn
    ekki er svo með alla menn.

    Sérstakleg hef ég nú trú á að öndinni leiddist meðferðin ef hún stæði í mér.

    "Ég stóð á öndinni" ef ég stæði á önd væri hún aldeilis ekki til frásagnar. Og þar sem um er að ræða eina önd gætu ekki fleiri staði á henni.

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:39 f.h.  

  • you are 2 funny sis....lololol

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


Vorið kemur með von til mí­n.
 
Sign my Guestbook from Bravenet.com Get your Free Guestbook from Bravenet.com