Andleg ruslafata

Lí­f mitt var ekkert nema skáldskapur, dans eftir undarlegu lagi sem enginn heyrði nema ég, dagarnir mínir, stuttir og langir, vísur orð sem rímuðu ekki.

sunnudagur, mars 05, 2006

Skömm stund.

Eftir skamma stund skunda ég til vinnu. Vinn svona tólf tíma ef allt er í sómanum annars lengur.
Svo kemur fríið ég fer í fríið ég fer í fríið. Það er að segja ef ég fer ekki á aukavakt, tveir dagar í frí væru vel þegnir. Svo kemur þetta allt saman í ljós eins og gengur.
Það gefur auga leið að lítið annað gerist í lífi mínu, nema í hausnum á mér, brestirnir verða reyndar áberandi þegar hvíldin er ekki næg.
En eins og fyrri daginn get ég sofið þegar ég er dauð.

Njótið hvers annars.

Það er gott að vera til. Kveikjum á kerti

2 Comments:

  • jú vissulega geturðu sofið þegar þú ert dauð, getum við það ekki öll? Ég þekki þig of vel til að vita að það er ansk...... löng leið að NEI-INU svo það er eins víst að fríið verði endasleppt.
    En hvað um það ég sakna te-spjallsins okkar alvarlega og ég tala nú ekki um smókanna úti í skúr!! Ég er bara alveg hætt að fá AM_smók!!!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:54 e.h.  

  • Eðlilega ertu í fráhvörfum bæði frá AM og mér, stefnum á tesopa.

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:28 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


Vorið kemur með von til mí­n.
 
Sign my Guestbook from Bravenet.com Get your Free Guestbook from Bravenet.com